R*E*A*L

Í RuGLiNu:*:*

26.05.2008 08:44:05 / Rannveig

María mín... þessi síða hefur ekki sungið sitt síðasta ennþá!!!

Heldur betur ekki! :)

Jæja langt síðan síðast er e-ð sem hægt er að segja við svona tilefni! En ég ætla að koma með eina færslu núna og vonandi aðra eftir ekkert alltof langan tíma en ég lofa engu! :p

Ýmislegt gerst síðan síðast...

- Sumarið er komið og ég fíla það í tætlur
- Ég er að vinna hjá TNT alla daga.. en ekki lengur í Intersport.. það fíla ég sko
- Það eru bara 42 dagar þar til við Bjarki förum til TENERIFE... ekki slæmt það :)

Jæja nóg um það... eg fór í svaka veislu á föstudaginn... þar sem áfengið flæddi og dansinn dunaði! :) Já hún María mín var að útskrifast sem stúdent ekki slæmt það! :p Til lukku með það María mín! :):):):) En það var rosa gaman þar og voru allir í miklu stuði og sumir í meira stuði en aðrir! :)

Ekki má ég gleyma að segja ykkur sem ekki vita það að ég og Bjarki fengum íbúð á föstudaginn.. jájá.. maður er kominn með þak yfir höfuðið ekki það að ég hafi búið á götunni .. en þið vitið hvað eg meina:)

Við gistum fyrstu nóttina okkar saman í nýju íbúðinni i nótt.. svo við erum hér með flutt... og er þér já þér velkomið að kíkja í heimsókn... reyndar höfum við upp á lítil þægindi að bjóða eins og er.. en ég meina þótt það sé enginn sófi eða þessa háttar þægindi þá er fínn ofn þarna til að tilla sér á .. og þótt við séum ekki komin með glös til að bjóða þér drykk þá er krani sem hægt er að drekka úr ! :P

Já svona er þetta..

Svo er planið að hafa innflutningsparty laugardaginn 7. júní sem sé þarnæsta laugardag :p jibbíííí:)

Ef þér er boðið þá færðu boð annars er þér sko ekkert boðið!

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... kemur meira fljótlega :P

Endilega kíktu í heimsókn..

svoooooooo er planið að fara á Indiana Jones annað kvöld.. hlakka ég til??? uuuu JÁ!!! :)

Kv. Rannveig SNILLINGUR








» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 08:40:42 / Rannveig

Það kom að því! :)

úff... það er eins og ár og öld hafa liðið frá því að ég ákvað að skrifa hingað inn síðast! :O Heldur betur kominn tími á að reyna að drita einhverju hér niður! :p

Annars er svo sem ekkert bitastætt búið að gerast frá því að ég tjáði mig hér síðast!

Nema kannski það að ég er búin að panta ferð til Tenerife í sumar.. 8.-22. júlí.. það verður án efa bara fjör, fer með Bjarka, Marra vin Bjarka og Tinnu kærustu hans! Hlakka smá til en það eru enn 5 mánuðir í þetta svo ég ætla ekki að fara að missa vatn af kátínu! :)

Einar bróðir átti afmæli laugardaginn 16. febrúar og mættu hann og Siggi svellkaldir í borgina til að kíkja á næturlífið hér í höfuðborginni..held þeir hafi nú skemmt sér sæmilega þrátt fyrir að vera eins og þeir eru :)

Hvað meira?!?!?!?!??! :)

Jújú, nú styttist óðum í frábæru bústaðaferðina hjá okkur stúlkunum og jújú örfáum drengjum... tilhlökkunin fyrir henni fer stigmagnandi með hverjum deginum því lýg ég sko ekki! :P

Þið sem eruð að koma í bústaðinn, Guðný, María, Sandra, Elva, Anna Þóra, María Þórdís og þú sem ég er að gleyma hvernig er stemmarinn? Verður þetta ekki svaka ferð?  ;)

Nú man ég ekki  fleiri fréttir... .hmmmmm ...

Heyrðu jú, ég er að fara á Food & Fun á Hótel Holt á föstudagskvöldið þar á ég von á fjögurra rétta máltíð og læti.. jájá svona er lífið ... eintóm ást og hamingja! :)

Sandra þú mannst eftir þessarri hátíð í fyrra þegar við kíktum á Rúnarinn okkar í Fifunni.. sá tók sig vel út í hvíta gallanum! :)

Svo ég minnist nú líka á það að það eru hvorki meira né minna en 163 dagar í hátíðina miklu!!!!! :) já þú veist jafnvel og ég að ég er að tala um Þjóðhátíð!!! :)

En jæja fer að segja þetta ágætt.. .þarf að ljúka við stærðfræðigreiningar verkefni fyrir hádegið! :)

Kv. Rannveig SNILLINGUR!

P.s. Ef þið viljið fara að fá reglulegt blogg hingað inn þá heimta ég komment!!! :)






» 15 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 15:18:12 / Rannveig

Jólin

:) :) :) :) Gleðileg Jól elskurnar  :) :) :) :)

Hafið það gott um jólin!

 Jólakveðja, Rannveig & Elva


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 19:22:33 / Rannveig

Bara smá fréttir..

Hæææjj, hvað segiði?

Jæja, nú styttist í jólin, kominn 16.desember og ekki nema 8 dagar til jóla! :)

Lítið að frétta af mér svo sem, bara búin að vera að vinna eins og vitleysingur og svo á ég jarðfræðiprófið eftir, en það er á þriðjudaginn, spurning hvort maður fari ekki að kíkja e-ð í jarðfræðibókina!!! :P

Kristíne systir farin til USA og verður þar í mánuð.. smá öfund en það er ekkert alvarlegt! :P

Er búin að vera hjá Rut frænku alla helgina, laufabrauðsgerð og skemmtilegheit..móðir og Kári upp á landi líka :P

En þetta er nú freeeeeeekar leiðinlegt blogg svo ég held ég hafi það ekki mikið lengra..

Sandra gella er svo heppin að fá að vera á Húsavíkinni um áramótin, hefði allas ekkert á móti því skal ég sko segja ykkur! :P  Þú skemmtir þér bara fyrir okkur báðar er þaggi elskan!? :P

En jæja... bara smá færsla.. þar sem ég sjálf var orðin þreytt á því að lesa alltaf "Eintóm gleði" :P

Ég verð svo í Smáralindinni alla daga allan daginn til jóla, í Intersportinu, svo ef þið eigið leið í Smáralind e-ð fyrir jólin, þá verðið þið að kíkja við hjá mér og segja "Hæ" ... :) 

Lærið er komið á borðið... svo ég kveð..

Rannveig SNILLINGUR 


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 11:23:56 / Rannveig

Eintóm gleði!

Sælar..

Enn ein vikan nánast liðin - hvert fara þessar vikur, helgar, dagar ? Mér finnst alltaf vera helgi. Ég verð orðin sextug kona tjillandi á snekkjunni minni annan hvern mánuð áður en ég veit af því!

Jæja ef það hefur e-ð farið fram hjá ykkur gott fólk, þá er langt liðið á nóvember mánuð og prófin fara að ganga í garð með tilheyrandi ást og gleði!

Helvítis próf!!!!! Ég held ég hafi náð botni tossa-skapsins þessa önnina, ég meina ég hef alltaf verið svo samviskusöm og skilað mínu, en ekki er hægt að segja það um þessa önn!!!! Ef ég færi í tossa-keppni myndi ég klárlega rústa henni og hirða fyrsta, annað og þriðja sætið!

Veit ekki hvað málið er, ég er allavega að gera allt annað en að læra! Vinna, fljúga til útlanda, hanga í tölvunni, já eða í ræktinni sem er jú búin að vera annað heimilið mitt undanfarið! J

En já þar sem ég er ekkert öskrandi æst í menntun þessa dagana þá er ég bara bókuð í 2 próf þessa önnina! Jájá.. þér finnst það lítið, en mér er alveg sama, sé ekki tilgang til að reyna við meira þegar ég held að einungis séu 8 heilasellur eftir í mínum haus og þar af bara 4 í fullri vinnu! Já meira að segja Einstein hefði ekki komist langt með einungis 4 sellur!!!! Svo ég tel mig alveg vera að gera ágæta hluti! J

Lag dagsins : “Your Body is a Wonderland”, JOHN MAYER

En já eins og ykkur sé ekki sama..

Heyrðu, ég veit svo sem ekki hvað meira ég get sagt ykkur gott fólk.. jólin að ganga í garð einnig með tilheyrandi ást og hamingju! Búið að bóka mig í sjálfan Herjólf daginn heilaga.. jájá ég er að tala um aðfangadag! Mæti svellköld og útæld í jólamatinn heldur þú að það sé ekki fínt!! J

Jæja, ætla að reyna að þagga niður í þessari hálsbólgu... ekki sátt með þessa óvæntu heimsókn hennar hingað í morgun, og má ég til með að segja frá því að ég átti fullan pakka af strepsils um helgina sem ég ákvað að bryðja mér til gamans þar sem mig langaði í e-ð gott.. en þar kom ég mér nú aldeilis í klípu, því ég hefði nú aldeilis gott af því að fá einn ef ekki tvo slíka mola í þessum skrifuðu! :O Kjáni ég!

Já ekki má gleyma að segja frá því að ég eignaðist lítinn frænda þann 25. nóvember, en Arnar bróðir í Köben og Gunna eignuðust lítinn mann þá, sá stutti hefur fengið nafnið, Victor Aron og hann er algjort krútt! :P Hlakka til að kíkja í heimsókn til þeirra, Til lukku með litla prinsinn, Arnar, Gunna, Unnar og Róbert! ;)

Sjáiði þetta krúúúútt, (Victor, Arnar og Róbert)

 

Jæja, hafið það gott elskurnar.. vinnan kallar

Kv. Rannveig SNILLINGUR


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 23:14:46 / Rannveig

25.10.2007 -

 

Hvað er að þessu helvíti!!!!!

Var komin vel á leið með tipp topp færslu.. þegar NEI, látum það bara hverfa!!!!!

ARG!!!! Þoli ekki þegar þetta gerist!!!

Allavega, ég skal reyna að rifja það upp sem ég var komin með!

---------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ég er allavega enn á lífi, hef bara ekki haft neina sérstaka þrá í mínu hjarta, hvað þá löngun til þess að blogga fyrir ykkur kæru vinir! En kannski ég get gert smá tilraun til þess fyrir ykkur vesalingana! ;)

Fór í innflutningspartý að Garðhúsum á laugardagskvöldið hjá þeim, Rúnari, Róberti, Gumma og Magga, en þar var margt um manninn og mikið fjör.


Eftir heljarinnar teiti var kíkt í bæinn og var Kofinn fórnarlamb okkar þetta kvöldið! Einhvern vegin tókst mér hins vegar að týna stórum hluta af mér, já ég er auðvitað að tala um símtækið mitt!
Ætli það hafi ekki skoppað úr vasanum í einni danssveiflunni eða þá að ég hafi sagt skilið við það á barnum það hlýtur allavega að vera einhver skýring á því, en hver hún er mun ég líklega aldrei komast að! Allavega þegar ég vaknaði um morguninn þá var ég með annað
símtæki en mitt í töskunni, ég hef heldur enga skýringu á því! En þessi
martröð endaði þó vel því símtækið komst í leitirnar á sunnudeginum. :)

Ég þakka guði fyrir það í bænum mínum á hverju kvöldi enn þann dag í dag! Sjæse.. og það eru komnir heil, hvað, FJÖGUR kvöld! Úff... já svona er maður þakklátur! ;)

HINET!!!! Bwhahahahaaaaaaaaa..........

Eftir vinnu á sunnudeginum kíktum ég og Júlía í heimsókn til Unnars bróður og Kötu, sem var bara gaman, fengum dýrindis lambalæri og ís í eftirrétt! Ylfa Guðrún litla frænka var hjá þeim og svo auðvitað litli prinsinn hann Gunnar Elías!

Annars er maður bara búinn að vera að reyna að sinna skólanum og því sem honum fylgir, hvernig það gengur, það er allt annað mál! :p

Sæll!
E-ð meira í fréttum?

Jújú bíðið, ég er að fara flytja aftur í borgina og það bara núna í næstu viku, mun nýja tímabundna heimili mitt vera staðsett í vesturbæ Reykjavíkur og get ég ekki annað sagt en að ég sé svolítið spennt fyrir því! :P En Þóra frænka var svo góð að leyfa mér að vera í íbúð þeirra hjóna.

Keypti mér kort í World Class í dag, ójá.. nú verður lífið eintóm ást og hamingja! Um leið og ég heyrði að ég gæti flutt í borgina um mánaðarmótin, þá var það fyrsta sem ég hugsaði, “Jesssss, ég get keypt mér kort í World Class!!! Þvílík gleði!

Já, svo hefur Kristján tölvunarfræði kennari ákveðið að gerast svo sniðugur að hafa próf handa okkur tölvu-nördunum á laugardaginn.. svaka spennandi, ógisslega spennt að eyða föstudeginum í MATLAB... vááá, já ég veit, þið öfundið mig!!!!

En ég get sætt mig við þetta próf því að ég fæ að fara til Svíþjóðar í staðinn!!!!

Eða okei kannski ekki í staðinn en ég er allavega að fara til Svíþjóðar aftur þann 7. nóvember og er væntanleg heim aftur þann 12. nóvember! Hlakka mega mikið til! Eins gott að það verður stuð, efast nú samt ekkert um það! ;) Veit allavega að það verður skemmtilegra í Svíþjóð heldur en í Matlab prófinu... eða hvað, er ég kannski e-ð að fara á mis?????

Nei, þú ert að fara á mis!!!!

Annars veit ég ekki hvað ég get sagt meira, nema það að ég er 100% ákveðin að ég ætla út í nám næsta haust og er ég búin að vera skoða nokkra skóla á Norðurlöndunum. Þá einna helst, DTU í Lyngby, KTH í Stokkhólmi og CTH í Gautaborg. Hvar ég enda, getur tíminn einn leiða í ljós. Ef þú hefur einhverja ástæðu fyrir því afhverju ég ætti frekar að fara til Danmerkur heldur en Svíþjóðar, eða frekar að fara til Stokkhólms eða Gautaborgar máttu endilega tjá þig um það hér ! ;)

Var það kannski HÆNET!!!!! ;)

Jæja, e-ð meira.. váááá sæll, kannski ekki meira í bili, þar sem þetta er orðið freeeeeeeeeekar langt og ég vildi að ég gæti sagt skemmtilegt blogg, en einhverra hluta vegna er ég ekki svo viss um það sé það! Eða hvað???? Lastu þetta allt???? Var gaman að þessu!?!?!?!:) Eða var þetta alveg, hrææææææðilegt?!?!?!?

Meðan ég man, ekki nema 13 dagar í Stokkhólm baby!!!!

Kv. Rannveig SNILLINGUR


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 02:19:55 / Elva

Rannveig þarftu að pissa? hér?

Ohhhh OK......   Stelpur standiði fyrir!!   ER EINHVER AÐ KOMA? STELPUR er einhver að koma????

Nei Rannveig það er enginn að koma.. PISSAÐU bara kona!

 

Eigum við að ræða þetta e-ð eða??

 

HAHAHAHAHHAHAHAHAHA ég get hlegið eeeendalaust af þessari mynd og bara þessu atviki hennar Rannveig... hahaha þú ert ást!

 Þetta blogg var tileinkað þér Rannveig mín, með von um að bloggandinn komi yfir þig:)

 Annars er voða lítið að frétta af mér, nema leið mín liggur á norðurlandið fagra á sunnudaginn næsta, lagt verður af stað árla morguns til að leika eitt stykki handknattleiksleik við lið Akureyrar. Leikurinn verður leikinn kl 16:00 að staðartíma. 
Þetta verður eintóm skemmtun get ég lofað, allir að mæta:)

Annars bara ást á ykkur öll... ég er farin í lærdóminn jaa eða bara e-ð annað!

 kv. Elva

p.s. RANNVEIG FARÐU AÐ BLOGGA ÁST! þetta gengur ekkert upp án þín:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 14:45:30 / Rannveig

Það styttist í blogg!

Bara láta ykkur vita að það fer alveg að líða ða því að ég hendi inn góðri færslu hér..

Eins og staðan er núna er lítið að frétta svo lítið til að segja eða skrifa um... en það kemur að því.. reyni að henda inn færslu um helgina! :) En lofa samt engu! :)

Kv. Rannveig SNILLINGUR!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 11:23:55 / Rannveig

Sæll, eigum við að ræða það eitthvað?

Góðan daginn..

Rannveig er kát í dag!

Komin með agalegan metnað... já ekkert væl lengur.. nú er það bara harkan sex...!!! já.. ég ætla ekki að drullu falla í þessum SEX áföngum sem ég er í núna um jólin ÓNEI!!!! Kominn tími til að rífa sig upp úr þessu "þunglyndi" og hefjast handa ekki seinna vænna! :)

Hvað segið þið annars góða fólk!??!?!?!?!

Sæll, eigum við að ræða það eitthvað?!?!?!?!?!

já það er svona.. segið mér nú e-ð sniðugt???? Hvað á að gera um helgina fólk?

Horfði á Næturvaktina síðustu helgi... þetta er ein mesta snilld sem fyrir finnst í heiminum þessa dagana... HAHAHA.. endalaust hægt að hlægja að þessu! :P

Jæja.. greiningin kallar!:p

Kv. Rannveig SNILLINGUR


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 15:36:23 / Rannveig

Hvað er ég að gera????

Góðan daginn...

Klukkan að ganga fjögur og ég búin að eyða því sem af er dagsins í akkúrat EKKI NEITT..jú okei.. reyndar kláraði ég Tölvunarfræðiverkefni en ekkert annað en það!

Er búin að eyða alltof miklum tíma í dag á "Andlits-bókinni" sú bók er alveg stór-mögnuð... get samt ekki sagt annað en að sá staður sé WAIST OF TIME en það er samt svo gaman að fikta í þessu, þetta er líka svo hrikalega steikt allt saman...ég meina nú er ég búin að join-a "Bring Back Blár Ópal" klúbbinn, komin með Stripper-nafnið "Roxie Solidbutter", búin að join-a Ninja Army og er bitin af Varúlfum í tíma og ótíma! ;) Þetta er lífið... MYSPACE er bara eins og könguló sem var kramin með nafnspjaldinu hans Rene... við hliðina á þessari "Andlits-bók"! :)

Já þetta er lífið.. eða hvað??

Held að ég sé svo á rangri braut í mínu lífi þessa dagana..

Finnst ég engan vegin eiga heima í Háskólanum.. allavega ekki núna.. hef verið að hugsa mikið síðustu 2 vikur.. um það hvort þetta sé virkilega það sem mig langar til að gera.. og hef komist að því.. að , mig langar að vera verkfræðingur og klára námið sem því tengist EN langar mig það akkúrat núna???? Ég meina maður er búinn að vera STANSLAUST í skóla í núna rúmlega 14 ár.. og stanslaust að læra í einhver 7 ár af þessum 14 árum.. ég held bara að ég verði að fá smá break frá þessu námi...

Mennt er máttur... en öllu má nú ofgera!

Himinn og jörð ættu nú ekki að farast þó ég útskrifist sem verkfræðingur 2013 frekar en 2012 og þótt ég verði 26 ára þá eða 25 ára... !!!!! Váááááá, hvað maður er að verða gamall!!! Shitturinn :$:$:$:$

En já ég er búin að vera hugsa mikið hvað ég ætti að gera ef ég myndi taka mér frí frá skóla eftir 1. misseri... og hafa komið upp ýmsar hugmyndir..!!! Nenni ekki að tjá mig um þær hér!

En hvað Háskólanám varðar þá held ég að mig langi mest til að mennta mig í útlandinu.. er búin að fá nóg af skerinu í bili... held ég hafi gott af því að prufa e-ð nýtt...

æææjjj það er bara svo margt sem mig langar að gera núna... held bara nánast allt annað en að svitna og pirra mig yfir námsefni.. eins og staðan er í dag þá er ég að pína mig til að vera í skólanum sem mér finnst engan vegin nógu sniðugt en ég bara get ekki hætt að pína sjálfa mig!!

Jæja... ég er að hugsa um að fara að henda mér niður í ræktina... veitir ekki af hreyfingunni... mig langar samt svo í bíó eða e-ð í kvöld.. nenni bara ekki að keyra í borgina og ég þekki engan hér í sveitinni sem gæti hugsanlega komið með mér í bíóið í Keflavík... ooohhh erfitt líf..

Váááá endalaust væl í mér.. ekkert nógu gott... god Rannveig... reyndu að njóta lífsins..!!! :)

Skemmtileg orð hér fyrir neðan...

Bessie Braddock: Winston, you are drunk!
Churchill: And Madam, you are ugly.
And tomorrow, I'll be sober, and you will still be ugly.

Segi þetta gott í bili... láttu mig vita ef þú hefur tíma til að heimsækja mig í kvöld ég verð ein heima... :)

Kv. Rannveig SNILLINGUR aka. Roxie Solidbutter (sem er einmanna og leiðist)!


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 00:30:21 / Rannveig

Er Svíþjóð málið??? Elva??? ;)

Jæja... komin heim í kotið! :) Frábær helgi að baki, frekar róleg en samt var hún æði.. ;) Strax farin að leggja hugann í bleyti og reyna að finna tíma fyrir næstu.. sem verður vonandi í bráð.. jújú hún verður í bráð ekkert voanndi! :)

Held að það sé haustferð í skólanum á fös.. ég var búin að ákveða að fara.. en svo kom babb í bátinn núna í kvöld.. þarf að öllum líkindum að vera með Kára litla bróðir um helgina + það að ég er að vinna alla helgina.. :O erfið helgi framundan .. ekki erfitt að hafa Kára minn en að þurfa að vinna og læra líka, það flækir málið aðeins! Nóg að gera alltaf.. + það að grandma á afmæli á laugardaginn.. og held að restin af familíunni sé að koma til landsins á lau og við að fara í leikhús og læti! :)

jæja nóg að gera... svo eru það útlöndin helgina eftir það.. eða já ..

Eyjar 5-7 okt.

Vinna helgina 12-14 okt

öllum líkindum "frí" helgina 19-20 okt

vinna helgina 27-28 okt.

god svo er bara kominn nóvember.. sjæse.. tíminn flýgur... en kannski maður kíkji aftur til Stokkhólms í byrjun nóvember.. ef þig langar að styrkja mig í því málefni.. þá tek ég við öllum fjárupphæðum á milli 16 og 18 alla daga nema þriðjudaga! :) hafið bara samband! :)

Svo er gaman að segja frá því að stefnan er tekin á Svíþjóð næsta vetur... ég og Elva erum að skoða alla möguleika ... og munum við láta ykkur vita hvað verður um leið og við sjáum hvað verður! :) Ýmislegt sem þarf að kanna, hvaða skóla? Hvernig nám? hvaða borg/bæ? hvaða handaboltalið??? hvar eigum við að búa ?? og svo mætti lengi telja! :P en já .. nóttin kallar góða nótt elskurnar! =)

Komment takk..

Kv. Rannveig SNILLINGUR


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 16:37:24 / Rannveig

So much to do, so little time...

Jæja gott fólk.. bara að segja ykkur það að ég verð í Stokkhólmi á þessum tíma á morgun! :) Gaman að því...

jájá.. sit hér í VR-2 að bíða eftir Önnu Þóru til að geta klárað vinnubókina í verklegri eðlisfræði!

Klukkan langt gengin í fimm og ég þarf að klára margt áður en ég get stigið upp í flugvélina og slakkað á... :)

 En já hef þetta ekki lengra í dag... eða þessa vikuna :) Hafið það gott um helgina góða fólk ! :)

 Kv. Rannveig SNILLINGUR


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 21:34:20 / Rannveig

Myndablogg... svo miklu miklu meira! :)

Góðan daginn.. allt gott og blessað að frétta héðan af Víkingagötunni! :)

 Skólinn kominn á fullt og meira en það.. þetta verður erfiður vetur en vonandi skemmtilegur líka.. :P

Hvað er búið að gerast síðan síðast??? Já það er góð spurning..

Ég á nóg að myndum því til sönnunar .. og munu þær birtast hér á næstu dögum...vikum.. lofa engu.. enda meira en nóg að gera hjá mér... én hér er smá preview...

    Ég & María hressar á Sólon 25. ágúst :)

 

Ég agalega fersk á 20 ára afmælisdaginn minn! 

María & Sandra, gullfallegar að vanda á Rex þann 25.08.'07

Fyrsta djammið hjá verkfræðinni var þann 31. ágúst og var það heljarinnar mikið stuuuuð! :)

 

Guðný, Eydís & Ási hress á fyrsta djammi vetrarins hjá Verkfræðinni! :)

 

 

 

 

 

                                                                

                                                                          Ég & Tryggvi á Gauknum!

Anna Þóra og Kristín hressar á Gauknum! :)

Síðan héldum ég og Elva upp á afmælið okkar á Sólon þann 1. september.. hér eru örfáar myndir frá því...

 Elva & Hildigunnar kátar að vanda :)

 

 

 

 

 

 

Elva, Guðný, Guðbjörg & smá ég :)

 

 Sumir geta bara ekki sest á almenningsklósett! :)

Júlía systir & Berglind, hressar í afmæli!

Team TNT, Sigurliðið þetta kvöldið, Konni, Viddi & Dóri...!:)

 Team Intersport...Óla, Dagný & Pétur.. vinnufélagar gífurlega kát í teitinu! :)

Ég og Elva kátar þann 1. sept! :)

jæja ég fer að segja þetta gott í dag... ætla að snúa mér að lestrinum ... en ég já ... en sumir vildu að ég héldi minni hefð hér á síðunni og kæmi með einhverja niðurtalningu...

jújú... það er e-ð framundan,

   - 2 dagar í helgina.. reyndar þarf ég að vinna en það er annað mál! :)

   - 7 dagar í að sumir eigi afmæli! :)    

   - 9 dagar í að ég yfirgefi Frónið í nokkra klukkutíma og haldi til Stokkhólms.. :)

   ótrútlegt en satt þá er ekkert meira spennandi framundan hjá mér .. bara nóg að gera í skólanum svo það er litill tími fyrir e-ð annað.. :)

Jæja.. ég kveð ykkur nú að sinni ..

Kv. Rannveig SNILLINGUR

   P.s ég HEIMTA fullt af kommentum... annars kemur restin af myndunum ALDREI á netið! :) TAKK FYRIR:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 12:53:12 / Elva

Summer looovin'

Á ég virkilega að trúa því að þetta yndislega frábæra sumar sé bara BÚIÐ!!

Skólinn tekinn við bara og ég veit bara ekki hvað....

 

Isspiss:*

 

En jæja já.. Elva að blogga.. ekki mikið viturlegt sem ritast þá get ég sagt ykkur.

 Takk fyrir mig á laugardaginn allir saman, treysti á að Rannveig setji inn myndir frá þessum atburði..

 Hef svo sem voða lítið að segja, nennti bara ekki að sjá þetta boðskort efst lengur :)

 Sumarið var samt æði pæði, hefði ekki viljað hafa það neitt öðruvísi og svo var því slúttað almennilega með æfingaferð til spánar með HK, það var hriiiikalega gaman :)

 


Brynja I, Rut, Arna Sif og ég

Ýmislegt skemmtilegt sem brallað var þar :)

 

Svo var Þjóðhátið tekin me trompi, maður kom heim alveg ónýtur, þreyttur og með sprungnar æðar í augunum takk fyrir :)

 


Lilja, ég og Elsa HK píur:)

 

Jææææja held ég sé bara farin að læra..er svo líka að vinna með skóla þannig að það er engin pása..

 Deildin byrjar svo 13. september í handboltanum, við eigum útileik við Gróttu kl 20:00 .. ALLIR að mæta :)

British Civilization here I come ! :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35